Hjólatíminn er upp runninn í Fossvogsskóla. Á dögunum yfirfór Dr. Bæk öll hjól nemenda og er það fjórða árið í röð að svokallað hjólerí hefst með þeim hætti.
Skoðað er eftir einföldum gátlista frá Dr. Bæk og gerðar athugasemdir ef eitthvað er að. Allir fá miða með heim undirritaðan af Dr. Bæk og að sjálfsögðu merki Dr. Bæk á hjólið. Nemendur í 7. bekkaðstoðuðu m.a. við skráningu, að pumpa og smyrja. Það var álit Dr.Bæk að ástand hjólanna væri mjög gott og greinilegt að nemendur bera mikla virðingu fyrir þeim. Liður í hjólaríi er líka umferðaröryggi og fá nemendur leiðbeiningar um notkun hjálma.