Hjóladagur Vesturbæjar

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Hjóladagur Vesturbæjar haldinn í annað sinn

Laugardaginn 11. maí sl. var Hjóladagur Vesturbæjar haldinn í annað sinn í Hagaskóla, en það var einmitt Hagaskóli ásamt Þjónustumiðstöð Vesturbæjar sem hélt utan um þennan viðburð. Dagur þessi er fyrst og fremst til að minna á hversu gott tæki hjólið er sem samgöngutæki. Ýmislegt var gert sér til gamans en það voru ýmsar þrautir í gangi, Doktor bike kom á staðinn og fór yfir hjólin, aðstoðaði fólk og lagaði eftir þörfum, hjólreiðatúr var tekinn um hverfið og svo voru nokkrir galvaskir sem tóku þátt í hinu svokallaða „tour de Vesturbær“ en það er stutt og skemmtileg keppni sem er svona meira til gamans gert. Fulltrúar nemenda úr 10. bekk Hagaskóla voru með grillaðar pilsur ásamt fleira góðmeti til sölu í fjáröflunarskyni.

Dagur þessi tóks í alla staði mjög vel og var ekki annað að sjá en að allir höfuð gaman og gagn af þessari uppákomu. Við hjá Þjónustumiðstöð Vesturbæjar hvetjum svo alla til að halda áfram að hjóla og hvetjum við alla iðkendur til að muna eftir hjálminum góða.

 

Gleðilegt hjólasumar.