Íslenski fjallahjólaklúbburinn fer í sína árvissu hjólaferð til Viðeyjar þriðjudaginn 25. júní. Hjólað verður um eyjuna og sagan skoðuð, hús og minjar. Hjólaleiðin er hvorki löng né strembin og því geta allir notið ferðarinnar, hjólagarpar sem og byrjendur. Þátttakendur koma með eigin reiðhjól en það er enginn aukakostnaður vegna hjólanna.
Siglt verður frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu verður opið og upplagt að njóta kvöldverðar í Viðey áður en hjólaferðin byrjar eða ljúka henni með vöfflukaffi og njóta kvöldsólarinnar yfir sundunum áður en haldið verður heim kl. 22:00.
Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1100,- fyrir fullorðna og kr. 550,- fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Hjólaferðin er ókeypis og öllum opin.
Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.