Frelsi, sveigjanleiki og tíma- og peningasparnaður er fremur tengt við reiðhjól en einkabíla um þessar mundir í Reykjavík. Aðstaða til hjólreiða hefur stórbatnað á síðustu árum og það nýjasta er hjólateljari sem veitir gagngóðar upplýsingar á Suðurlandsbrautinni.
Flestar bílferðir í Reykjavík eru stuttar en þær kosta oft tíma því finna þarf bílastæði, bíða á ljósum og jafnvel koma við á bensínstöð. Sá sem hjólar þessar stuttu leiðir kemst aftur á móti 5 km á 15 mínútum, oft í góðu veðri.
"Reykjavíkurborg vill vera til fyrirmyndar hér á landi um eflingu hjólreiða og hefur því unnið markvisst undanfarin ár að gerð hjólreiðastíga með hliðsjón af þekktum hjólaborgum í Danmörku, Hollandi og Þýskalandi," segir Pálmi Freyr Randversson borgarhönnuður hjá Reykjavíkurborg. Góðum hjólastígum hefur fjölgað mikið og má nefna sem dæmi tvöföldun stígakerfis á Ægisíðu, í Fossvogi og Suðurlandsbraut yfir Elliðaárósa og yfir í Grafarvog og þaðan áfram í Mosfellsbæ.
Langur listi er framkvæmdur á þessu ári og því næsta og getur hjólreiðafólk og aðrir skyggnst inn í framtíðina með því að hjóla- eða ganga stígana á Suðurlandsbraut. Þar eru t.a.m. sérstök umferðarljós fyrir hjól og hjólateljarinn áðurnefndi. Allt gert til að hvetja til hjólreiða í borginni og tryggja öryggi og gæði þessa ferðamáta. Rekja má áhersluna á að gera Reykjavík að hjólaborg til þess að vinna hófst við hjólreiðaáætlun árið 2008 sem var samþykkt árið 2010 og er nú ein af stefnunum sem tekið er mið af í aðalskipulagi Reykjavíkur.
Hjólateljarinn sýnir fjölda hjóla sem fara stíginn daglega og tekur einnig saman heildartölu frá því hann var settur í samband 19. júní sl. Hann sýnir einnig tíma og hitastig. Þá býr hann yfir möguleika til að mæla hraða hjóla. Hjólateljarinn tilheyrir hóp teljara sem finna má í nokkrum löndum eins og á Norðurlöndunum, Írlandi, Englandi, Hollandi og Belgíu og er hægt að fylgjast með þeim á netinu.
Hjólreiðar og aðalskipulagið
Hjólreiðar eru hátt skrifaðar í nýju aðalskipulagi Reykjavíkurborgar sem nú er í auglýsingu, enda falla þær vel að helstu markmiðum um þéttingu byggðar og vistvænar samgöngur ásamt því að hjálpa til við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Nefna má framkvæmdir og hönnun hjólastíga á þessu á ári eða því næsta,í Borgartúni, Sæmundargötu, Hverfisgötu, á Hofsvallagötu og Úlfarsfellsveg , brýr yfir Elliðaárósa, Elliðaárdal við Breiðholtsbraut og við Norðlingaholt ofl.
Síðastliðin 4 ár hefur hjólreiðafólk verið talið á völdum stöðum og má fullyrða að fjöldinn á hjólum hafi þrefaldast. Nú hefur verið ákveðið að auka þessar talningar á nokkrum stöðum í borginni til að safna upplýsingum. Hjólateljarinn nýtist vel í því efni.