Börnin í Norðlingaskóla og leikskólanum Rauðhól eru himinlifandi með nýja skólalóð sem er öll hin glæsilegasta.
Nemendur í Norðlingaskóla áttu fulltrúa í hönnunarhópnum sem lagði fram tillögu að glæsilegri og stórri skólalóð, eða alls um 27.000 fermetra. Allar hugmyndir um skipulag lóðarinnar og val á leiktækjum var borið undir þá enda eru þeir kampakátir með útkomuna.
Nýja skólalóðin nýtist bæði nýjum leikskóla Rauðhóls sem tók til starfa síðsumars og grunnskólanum og er auk þess útivistarsvæði fyrir alla íbúa hverfisins. Lóðin flæðir fallega inn í náttúru Norðlingaholtsins með stöllum, hleðslum og göngustígum.
Það var arkitektastofan Hornsteinar sem hannaði lóðina í nánu samráði við starfsmenn skólanna í Norðlingaholti, foreldra og nemendur.