Hetjur í Sundhöll Reykjavíkur

Íþróttir og útivist

""

Starfsmenn í Sundhöll Reykjavíkur björguðu lífi sundlaugargests á dögunum. Sundlaugargestir tóku eftir manninum þar sem hann lá meðvitundarlaus á botni laugarinnar og köfuðu eftir honum. Starfsmenn sundhallarinnar þau Bjarni Valtýsson, Ari Gunnarsson og Guðrún Sæmundsdóttir, hófu endurlífgun á bakkanum og hringdu á sjúkrabíl sem flutti manninn á sjúkrahús. Hann hefur nú verið útskrifaður af sjúkrahúsi.

Snör viðbrögð starfsfólks eru afar mikilvæg við aðstæður sem þessar og þau Bjarni, Ari og Guðrún fylgdu öryggisreglum í hvítvetna sem skiptir sköpum. Þau Bjarni, Ari og Guðrún björguðu dreng frá drukknun í lauginni fyrir tveimur árum og Jón Gnarr borgarstjóri fór þá og hitti Bjarna og veitti honum viðurkenningu fyrir vasklega framgöngu. Fjölmiðlar ræddu við þau Bjarna, Ara og Guðrúnu um björgunina. Sjá umfjöllun Stöðvar tvö.