Helgi Sveinsson, heimsmeistari í spjótkasti var heiðraður í Höfða í gær. Helgi keppti í spjótkasti á heimsmeistaramóti fatlaðra í Lyon í Frakklandi sem fram fór dagana 19. - 28. júlí síðastliðinn. Hann keppti í flokki aflimaðra (flokkur F42) og kastaði spjótinu 50,98 metra sem er bæði nýtt og glæsilegt Íslandsmet og heimsmeistaramótsmet en fyrra metið var sett í Bretlandi árið 1998 og því var Helgi að slá 15 ára gamalt met í flokknum.
Borgarstjóri óskaði Helga til hamingju með glæsilegan árangur og færði honum blómvönd. Freyr Ólafsson, formaður frjálsíþróttadeildar Ármanns, tók einnig til máls og sagði að Helgi væri sannur víkingur og afburða íþróttamaður sem væri vel að titlinum kominn.
Reykjavíkurborg óskar Helga innilega til hamingju með heimsmeistaratitilinn.