Heimsins konur á Íslandi – bók um framlag kvenna af erlendum uppruna á Íslandi
(*Link with information in English below)
Taktu þátt í að tilnefna konur af erlendum uppruna sem hafa lagt sitt að mörkum til íslensks samfélags.
Verkefnið Heimsins konur á Íslandi (vinnuheiti) miðar að því að gera framlag kvenna af erlendum uppruna til íslenskrar menningar og samfélags sýnilegt. Gefin verður út viðtalsbók um þátttöku kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi og samhliða útgáfu hennar verður sett upp ljósmyndasýning og vefur.
Að verkefninu standa fjórar konur af íslenskum og erlendum uppruna í samvinnu við Söguhring kvenna, sem er samstarfsverkefni Borgarbókasafns Reykjavíkur og Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Konurnar fjórar eru Ania Wozniczka, Kristín R. Vilhjálmsdóttir, Kristín Viðarsdóttir og Letetia B. Jónsson.
Framlag þeirra fjölmörgu kvenna sem hafa af ýmsum ástæðum kosið að gera Ísland að heimili sínu er ómetanlegt. Búseta kvenna af erlendum uppruna á Íslandi auðgar íslenska menningu og samfélag. Með því að gera framlag þeirra sýnilegt og fagna því viljum við styrkja fjölmenningu á Íslandi og sjálfsmynd kvenna af erlendum uppruna.
Viltu leggja þitt af mörkum við gerð bókarinnar? Áhugasamir geta tilnefnt konur af erlendum uppruna á Íslandi með því að fylla út þetta eyðublað (word, 42kb), vista það og senda á heimsinskonur@gmail.com ekki seinna en 31. mars.
Verkefnið hefur hlotið styrki frá Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar, Hlaðvarpunum, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO.
Upplýsingar og eyðublað á íslensku: http://borgarbokasafn.is/desktopdefault.aspx/tabid-2880/4650_read-35309.
* Information in English: http://borgarbokasafn.is/desktopdefault.aspx/tabid-3170/5093_read-35311.