Heilbrigðiseftirlitið mælir með vistvænum samgöngum í Heiðmörk

Umhverfi Heilbrigðiseftirlit

""

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill í tilefni af tveimur aðsendum greinum í Morgunblaðið þann 21. og 22. febrúar leiðrétta misskilning sem þar kemur fram. Staðhæft er í báðum greinunum að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi afturkallað deiliskipulag Heiðmerkur.  Heilbrigðiseftirlitið hefur engin völd til að afturkalla deiliskipulag en er umsagnaraðili eins og almenningur og aðrir hagsmunaaðilar. 

 

Heilbrigðiseftirlitið hefur  í umsögnum sínum ekki einbeitt sér að umferð hesta um Heiðmörk eins og greinarhöfundar virðast telja. Umsagnir eftirlitisins snúast að mestu leyti um áhyggjur af aukinni bílaumferð á svæðinu. Heilbrigðiseftirlitið hefur af þeim sökum mælt með vistvænum samgöngum, takmörkunum á bílaumferð og mengunarvörnum með framtíðina að leiðarljósi. 

Í ljósi þess að hestamenn hafa tjáð sig um málefni Heiðmerkur vill Heilbrigðiseftirlitið taka fram að bannað er flytja úrgang inn á svæðið og skilja eftir þ.á.m. hrossatað, en talsverð hesthúsabyggð er í nágrenni svæðisins.

Skógrækt í Heiðmörk er samkvæmt samningi við Reykjavíkurborg og háð þeim takmörkunum t.d. á áburðarnotkun sem samþykkt um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu nr. 636/1997 kveður á um. 

Gæði sem falin er í ástandi grunnvatns og neysluvatns frá Heiðmerkusvæðinu er óumdeild auðlind sem á að verja til allrar framtíðar. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stendur vörð um þessi gæði og framfylgir lögum og reglum þar og notendur svæðisins eiga að fara eftir.

 

 

Tengill:

Vatnsverndarsvæðið.

Opið málþing um vatnsvernd.