Haustsmiðjur grunnskólakennara vel sóttar

Skóli og frístund

""

Haustsmiðjur kennara í grunnskólum borgarinnar fóru fram dagana 12. og 13. ágúst en þær eru liður í símenntun þeirra. Alls voru haldin 12 námskeið og ein málstofa og sóttu þau ríflega 500 kennarar. Boðið var upp á fjölbreytta fræðslu, s.s. kennslu í erlendum tungumálum, upplýsinga- og tæknimennt og nýjar áherslur í grunnfögum í ljósi nýrrar aðalnámskrár.

Flest námskeiðin fóru fram í Réttarholtsskóla, það fjölmennasta var um íslenskukennslu í ljósi nýrrar aðalnámskrár en það sátu 60 kennarar. Þá var fullt út úr dyrum á málstofu um staðalmyndir kynja og jafnréttismenntun. Þar fluttu fyrirlestra Jón Páll Haraldsson, aðstoðarskólastjóri í Laugarlækjarskóla, Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur hjá Landlæknisembættinu og Dagbjört Ásmundsdóttir mannfræðingur. Fjallað var m.a. um áhrif fjölmiðla á staðalmyndir, líkamsvirðingu, útlitsáráttu og  leiðir til að stemma stigu við þeim kynjaða veruleika sem blasir við og birtist í ríkjandi viðmiðum

Meðal þeirra sem sátu málstofuna voru kennarar úr Austurbæjarskóla, Háteigsskóla og Hlíðarskóla ásamt frístundaráðgjöfum í frístundamiðstöðinni Kampi sen þeir eru að hefja nýtt þróunarverkefni sem miðar að því að vekja nemendur til umhugsunar og umræðu um staðalmyndir kynja og áhrif þeirra á líf og heilsu. Málstofustjóri var Oddný Sturludóttir formaður skóla- og frístundaráðs.