Harmonikuhátíð í Árbæjarsafni á sunnudaginn

Mannlíf Menning og listir

""

Sunnudaginn 17. júlí verður hin geysivinsæla harmonikuhátíð Reykjavíkur haldin venju samkvæmt í Árbæjarsafni og hefst dagskráin kl. 13.00. Þá gefst einstakt tækifæri til að kynnast og njóta í návígi margra okkar bestu og þekktustu harmonikuleikara í magnaðri umgjörð safnsins. Þessi hátíð hefur á síðustu árum notið sívaxandi vinsælda og er nú orðin einn fjölsóttasti viðburður safnsins, enda ógleymanlegt tækifæri fyrir alla aldurshópa til að rifja upp sögu okkar á safninu við undirleik ljúfra harmonikutóna á fallegum sumardegi.

Á sunnudaginn gefst færi á að hlusta á hljómsveitir, hópa og einleikara og má þar nefna hljómsveit F.H.U.S., Hóp Einars Friðgeirs Björnssonar, Landsliðið, Skæruliðana auk hinna einu sönnu Neista, Karls Jónatanssonar. Af hópi einleikara má t.d. nefna Örvar Kristjánsson, Jónu Einarsdóttur, Grétar Geirsson, Margréti Arnardóttur, Þór Halldórsson, Heklu Eiríksdóttur, Pál Kárason, Sigurð Alfonsson o.m.fl.