Handverkssýning félagsmiðstöðvarinnar Árskógum

Handverkssýning Félagsmiðstöðvarinnar Árskógum 4

Hin árlega handverkssýning Árskóga verður haldin í félagsmiðstöð Árskóga dagana 25. og 26. apríl kl.14.00 - 16.30.

Sýndir verða handverksmunir og frístundamálarar úr hópi Elsu sýna verk sín.

Harmonikkutónlist í umsjón Félags harmonikkuunnenda í Reykjavík á fimmtudeginum.

Kaffiveitingar seldar í salnum Víðivöllum.