Félagsmiðstöðvarnar Lindargötu 59 og Vesturgötu 7, halda sýningu á handverki auk þess að kynna starfsemi sína dagana 24. 26. og 27. maí frá kl. 13 - 16.30 í félagsmiðstöðinni Vesturgötu 7.
Fjölbreytt starf félagsmiðstöðvanna verður kynnt og sýndir munir sem gestir félagsstarfsins haf unnið t.d. tréútskurður, glerbræðsla og glerskurður, bókband, bútasaumur, postulín, myndlist, leirmunir, prjón, hekl, útsaumur, skartgripir o.fl. Sýning félagsmiðstöðvanna er öllum opin.
Handverkssala frá kl.13 - 16 og skemmtiatriði alla dagana kl.15.00.
Veislukaffi frá kl. 14.30 - 16.00 nema sunnudag frá kl.13.30 - 16.00.
Nánar um dagskrá:
Föstudaginn 24 maí
Kl. 13.30 - 14.30: sungið við flygilinn
við undirleik Gróu Hreinsdóttir.
Kl. 14.30 - 16.00 dansað undir stjórn Sigvalda Þorgeirssonar.
Sunnudaginn 26 maí
kl.15.00 nemendur frá Dansskóla Jóns Péturs og Klöru sýna samkvæmisdansa.
Mánudaginn 27 maí
Kl.14.00 syngur kór Félagsstarfs aldraðra í Reykjavík (Söngfuglarnir) undir stjórn Gróu Hreinsdóttur.
Kl.15.00 leikur Vitatorgsbandið fyrir dansi.