Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur

Mannlíf Menning og listir

""

Handverk og hönnun er hafin í Ráðhúsi Reykjavíkur og að þessu sinni er sýningunni  skipt í tvo hluta og mun hún standa í tíu daga. Það var gert vegna fjölda umsókna sem bárust. Þessi mikli áhugi endurspeglar þá miklu grósku sem er á þessu sviði um þessar mundir.

Handverk og hönnun er hafin í Ráðhúsi Reykjavíkur og að þessu sinni er sýningunni  skipt í tvo hluta. Það var gert vegna fjölda umsókna sem bárust. Þessi mikli áhugi endurspeglar þá miklu grósku sem er á þessu sviði um þessar mundir og kallaði á nýjar lausnir og nú mun sýningin því standa í tíu daga.
 
Fyrri helmingur sýnenda kynnir vörur sínar frá 7. – 11. nóvember og seinni frá 13. – 17. nóvember.Meðal þess sem sýnt verður er fjölbreytt úrval af skarti, fatnaði, munum úr hornum og beinum, leir- og glermunir og snyrtivörur. Gróskan og fjölbreytnin er mikil og að þessu sinni sýna tæplega níutíu aðilar verk sín auk þess sem Heimilisiðnaðarfélag Íslands kynnir starfsemi sína.
 
Þetta er í tíunda sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN er haldin og er óhætt að segja að sýningunni hafi verið vel tekið frá upphafi og hefur aðsóknin ávallt verið mjög mikil. Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun á einum stað. Það eru listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir sem kynna vörur sínar á sýningunni. 
 
     OPNUNARTÍMI
Fimmtudagur 7. nóv. kl. 16 – 19
Föstudagur 8. nóv. kl. 10 – 18
Laugardagur 9. nóv. kl. 10 – 18
Sunnudagur 10. nóv. kl. 10 – 18
Mánudagur 11. nóv. kl. 10 – 18
 
Miðvikudagur 13. nóv. kl. 16 – 19
Fimmtudagur 14. nóv. kl. 10 – 18
Föstudagur 15. nóv. kl. 10 – 18
Laugardagur 16. nóv. kl. 10 – 18
Sunnudagur 17. nóv. kl. 10 – 18