Hamingjuhádegið vinsælt

Velferð Mannlíf

""

Fjöldi fólks sótti hamingjuhádegi í Ráðhúsinu síðastliðinn föstudag. Hamingjuhúsið og Reykjavíkurborg standa að hamingjuhádeginu og er öllum boðið að taka þátt í dagskránni og hlaða hamingjubatteríin. Föstudaginn 20. september verður leikurinn endurtekinn á sama tíma ekki missa af því.

Fjöldi fólks lagði leið sína í Ráðhús Reykjavíkur síðastliðinn föstudag til að taka þátt í hamingjuhádeginu. Hamingjuhúsið og Reykjavíkurborg standa að hamingjuhádeginu sem haldið verður alla föstudaga í september. Öllum boðið að taka þátt í dagskránni og hlaða hamingjubatteríin og hlaða sig hamingjuhormóni.

Edda Björgvinsdóttir, leikkona og hamingjudíva, ávarpar gesti því næst kom Margrét Leifsdóttir, heilsuarkitekt, og talaði um mikilvægi góðrar heilsu og hamingju. Bjargey Aðalsteinsdóttir, íþróttafræðingur og jógakennari, frá Hamingjuhúsinu kom öllum í dansgírinn. Jakob Frímann Magnússon, tónlistar- og Stuðmaður, sá um tónlistina og kom öllum í stuð. 

Hamingjuboðorðum var deilt út og að lokinni dagskrá dönsuðu viðstaddir út úr Ráðhúsinu svokallaðan "Dance Walk" dans og skemmtu sér konunglega og fóru sælir út í daginn.

Á föstudaginn kemur þann 20. september verður leikurinn endurtekinn á sama tíma frá 12.15 til 12.45 og að þessu sinni sjá þau Svavar Knútur og Kristjana Stefáns um tónlistina. Ekki missa af hamingjuhádeginu þetta er svo skemmtilegt!! 

Sjá nánar dagskrá á hamingjuhusid.is