Hamingjan í vistvænum ferðamáta

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Átakið Hjólað í vinnuna hófst í morgun með opnunarhátíð í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal og stendur átakið til 28. maí næstkomandi.

Þátttakendum var boðið til morgunverðar og komu margir hjólandi, þáðu hollan morgunverð og hlýddu á hvatningarorð áður en hjólað var til móts við nýjan vinnudag.  Ávarp fluttu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs Reykjavíkur, Eva Einarsdóttir, formaður íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur, Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, og Árni Davíðsson, formaður LHM.

Allir voru sammála um ágæti þess að velja vistvænan ferðamáta hvort heldur fyrir samfélagið eða einstaklinginn. Ögmundur og Dagur lýstu yfir ánægju með samgöngubætur fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur en ríki og borg hafa tekið höndum saman um að byggja upp vistvænar samgöngur við stoðbrautir í borginni. Dagur nefndi líka brúna yfir Elliðaárósa sem risi í sumar og fullyrti að borgarsamfélagið yrði betra og kærleiksríkara eftir því sem fleiri hjóluðu. Eva sagði frá því að fyrir kosningar 2010 var búið að leggja 2.5 km af hjólastígum en í lok árs 2013 verða þeir 16 km.

Oddný nefndi verkefni sem unnið er að til að gera skólaleiðir barna öruggar og að grunnskólabörn yrðu hvött til að hjóla í skólann í mái. Í máli Árna formanns LHM kom fram að í markmiðum stjórnvalda til ársins 2026 væri stefnt að því að 6% borgarbúa nýttu sér vistvænan ferðamáta en nýlegar kannanir benda til þess að fimm af hverjum hundraði nýti sér hann nú þegar. Því gætu stjórnmálamenn jafnvel þurft að setja markið hærra.

Doktor. Bæk var á staðnum og fór yfir hjólin hjá hjólreiðaköppum.

Allir geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til að koma sér til og frá vinnu, þ.e. hjóla, skokka, ganga, hlaupa á  línuskautum o.s.frv. Þeir sem nýta almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem er  gengin eða hjóluð til og frá stoppistöð.

Tölfræðin

Reglur um þátttöku

Hjólakönnun, hvert liggur þín leið?

Hjólastígakort