Hallardrottningin í Hæðargarði kvödd

Mannlíf Menning og listir

""

Föstdaginn 28. júní  kveðjum við í Félagsmiðstöðinni Hæðargarði 31 Ásdísi Skúladóttur með pompi og pragt og „karneval“ stemmningu.

Tvær prinsessur framtíðarinnar taka við hallarlyklunum úr hendi hallardrottningar!

Með litríkum klæðnaði, jóladressum, sparihöttum, skínandi þverslaufum, partýbombum og góða skapinu fögnum við bjartri framtíð Hæðargarðs.

Óvæntar uppákomur og veisluborð.

Látið tíðindin berast!