Það verður gleði og gaman í Grafarvogi um næstu helgi en laugardaginn 25. maí fagna íbúar Grafarvogsdeginum. Það gera þeir m.a. með því að skreyta hverfið í öllum regnbogans litum eftir því í hvaða götum menn búa og/eða starfa.
Hallsteinsgarður verður vígður en það verður myndhöggvarinn sjálfur, Hallsteinn Sigurðsson, sem afhendir Reykjavíkurborg verk sín til eignar.
Klukkan 13.00 fer skrúðganga frá Hallsteinsgarði niður að Gufunesbæ þar sem slegið verður upp hátíðarhöldum þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Frítt verður í sundlaug Grafarvogs en þar verður boðið upp á morgunverð og vatnafjör fyrir börnin auk þess eru þátttakendur Grafarvogsdagsins velkomnir í Egilshöll og frítt verður á skauta fyrir börn.
Að lokum má nefna opið hús hjá Íslenska gámafélaginu en þar verður hægt að sjá sýningu á hlutum sem hafa fengið nýtt líf. Hoppukastali og grillaðar pylsur verða að sjálfsögðu hluti gleðinnar.
Dagurinn er tækifæri fyrir fjölskylduna að hafa það gaman saman en allir eru velkomnir að taka þátt í dagskránni og gleðjast með Grafarvogsbúum.