Grafarvogsbúar ánægðir með nálægðina við náttúruna

Velferð Umhverfi

""

Íbúar Grafarvogs fjölmenntu á fund um hverfisskipulag sem haldinn var í Gufunesbæ í gær. Á fundinum tóku íbúar þátt í hópastarfi þar sem sérfræðingar frá skipulagssviði voru til taks og rædd voru hin ýmsu skipulagsmál í hverfinu.

Á fundinum kom meðal annars fram að Grafarvogsbúar eru ánægðir með nálægðina við náttúruna og það mikla rými sem er til útivistar í borgarhlutanum. Margir íbúar hafa flutt í borgarhlutann utan af landi og upplifa hann sem sjálfstætt þorp og algengt er að fólk flytji innan hverfis frekar en að flytja í burtu. Hinsvegar ræddu fundarmenn um að það væri áhyggjuefni hversu mikið af þjónustu hefur horfið úr hverfinu á undanförnum árum. Sem dæmi má nefna: ÁTVR, Pósthús, banka, apótek og verslanir. Rætt um mikilvægi þess að nýta þá þjónustu sem er eftir svo hún hverfi ekki líka.

Íbúar líta á borgarhlutann sem eitt hverfi en ekki mörg. Því þarf að tengja hverfishlutana betur saman t.d. með göngu og hjólastígum. T.d. leggja stíg í gegnum hverfið frá Korputorgi að Gullinbrú. Eitt af því sem þarf að gera er að fjarlægja manir sem aðskilja hverfishlutana.

Almenn ánægja var með göngustíga í Grafarvogi en auka mætti þægindin með því að fjölga litlum grænum svæðum og bekkjum. Ennfermur þyrfti að bæta umhirðu og þrif á grænum svæðum í borgarlandinu, á gagnstígum og þá er graffity víða sem þyrfti að þrífa burtu.

Svæðið í kring um golfvöllinn nýtist ekki til útivistar. Þeir sem þekkja ekki golfreglurnar þora ekki að nálgast golfvöllinn. Íbúar hafa verið reknir í burtu af golfvellinum af reiðum golfurum. Sama á við um Geirsnefið sem einungis nýtist afmörkuðum hópi.

Íbúar ræddu um framtíð skólanna í ljósi þess að börnum í hverfinu er að fækka. Og hvað strætósamgöngur varðar þá var rætt um að allir strætisvagnar gangi niður í miðbæ. Það hefur t.d. áhrif á val nemenda á framhaldsskóla því það er t.d. ekki hægt að sækja Fjölbrautaskólann í Breiðholti á strætó úr Grafarvoginum.

Annað sem fram kom á fundinum var:

  • Að fá endurvinnslustöð í Sorpu í stað þess að þurfa að fara með rusl á Sævarhöfða.
  • Meira samræmi milli biðskyldu og hægri réttar í hverfinu.
  • Bæta merkingu gangbrauta
  • Huga að því að íbúar hverfisins eru að eldast.
  • Vantar fleiri leiksvæði inn í hverfið.