Götugleði í miðborginni

Mannlíf Menning og listir

""

Götulistahátíðin Götugleði fer fram í fyrsta sinn í miðborg Reykjavíkur dagana 5. - 14.júlí 2013. Heimsþekktir götulistamenn munu leika listir sýnar á hátíðinni sem fer fram í Austurstræti og er borgarbúum og gestum boðið að njóta þessarar skemmtilegu fjölskylduhátíðar.

Upphafsmaður og drifkraftur hátíðarinnar er Lee Nelson sem er betur þekktur sem trúðurinn Wally en hann hefur starfað sem götulistamaður um allan heim síðastliðin 15 ár. Lee hefur fengið þekkta listamenn til liðs við sig að þessu sinni.  Á meðal þeirra eru Basketball Jones sem er heimsins besti körfubolta” jögglari”, Toni Smith, minnsti húlla dansari í heimi, og hinn ótrúlegi gúmmíhanskamaður Mr. Qwirk.

Hátíðin er samstarf Höfuðborgarstofu , Sirkús Íslands og Volcano Sirkúslistahátíðarinnar

Dagskrá hátíðarinnar má finna í meðfylgjandi skjali.