Góður íbúafundur með Kjalnesingum
Liðlega 50 manns sóttu íbúafund borgarstjóra í Klébergsskóla á Kjalarnesi í gærkvöldi. Borgarstjóri ávarpaði fundargesti í upphafi fundar og að því loknu var opnað fyrir fyrirspurnir úr sal. Fjölmörgum spurningum var beint til borgarstjóra og embættismanna sem sátu fyrir svörum að auki komu fram góðar hugmyndir varðandi verkefnið Betri hverfi.
Borgarstjóri fór meðal annars yfir helstu verkefni sem framkvæmd voru á Kjalarnesi í tengslum við Betri hverfi 2012, þar var meðal annars bætt aðstaða til sjóbaða, upplýsingaskilti, endurbætur á lýsingu, gróðursetning og fleira.
Kjalnesingar komu með athugasemdir út af slæmum veg niður að leikskóla hverfisins, aðgengi að undirgöngum sem liggja undir þjóðveginn og stætósamgöngum. Íbúar lýstu yfir ánægju með bætta sjósundsaðstöðu sem þeir sögðu vera til mikilla bóta þar sem margir stundi sjósundböð í hverfinu.
Embættismenn borgarinnar leituðust við að svara þeim spurningum sem fram komu á fundinum.
Borgarstjóri hvatti íbúa til að taka virkan þátt í því að koma með hugmyndir að smærri framkvæmdum og viðhaldsverkefnum um betra hverfi inn á samráðsvefinn betrireykjavik.is. Opið verður fyrir innsendar hugmyndir til 15. febrúar nk. Dagana 14. - 19. mars nk. verður svo efnt til rafrænna íbúakosninga um verkefni í hverfum.
Ítarefni: