Góðgerðavika í Breiðholti
Ungmennaráð Breiðholts stendur fyrir Góðgerðarviku Breiðholts.
Vikan sem um ræðir er 4. - 9. febrúar. Þau hafa fengið alla skóla í Breiðholti til liðs við sig, félagsmiðstöðvar, fyrirtæki og listamenn. Markmið vikunnar er að láta gott af sér leiða, bæta ímynd ungs fólks í Breiðholti, sýna samstöðu og í leiðinni styrkja Ljósið.
Í vikunni sjá nemendafélögin um dagsskrá og/eða gera góðverk. Sem dæmi gefur einn skólinn allan gróða af sjoppunni sinni til Ljóssins meðan annar selur sérstaka snúða þessu til styrktar. Á föstudeginum verður síðan árleg hæfileikarkeppni Breiðholts (Breiðholt Got Talent) þar sem unglingarnir láta ljós sitt skína.
Aðaldagurinn er síðan á laugardaginn 9. feb en þá verða smiðjur fyrir unglinga í Breiðholtinu. Smiðjurnar eru fjölbreyttar en þau geta valið úr dans-, íþrótta-, sushi-, matreiðslu-, ævintýra-, lista-, fjölmiðla-, tækni-, heilsu- og útieldunarsmiðju. Allar smiðjurnar eru fríar og gefa starfsmenn vinnu sína yfir daginn. Nánari upplýsingar um smiðjurnar og staðsetningu þeirra er hægt að finna á midberg.is Um kvöldið verður síðan góðgerðarball í Hólabrekkuskóla þar sem Jón Jónsson, Frikki Dór og MC Gauti gefa vinnu sínu. Allur ágóði af ballinu rennur óskiptur til Ljóssins. Verð á ballið er 500 kr í forsölu og 800 kr við innganginn. Hægt er að kaupa miða í öllum félagsmiðstöðvum í Breiðholti
Með þessu framtaki vonar ungmennaráð Breiðholts að jákvæð umræða skapist um ungt fólk í Breiðholtinu.
Í ungmennaráðinu eru:
Ágústa Mekkín, Embla Rún Björnsdóttir, Laufey Hanna Tómasdóttir, Kristína M. Barðdal, Katrín Björk Kristjánsdóttir, Melkorka Embla Hjartardóttir, Bryndís Magnúsdóttir, Sigríður Esther, Sara Þöll, Sylvía Hall, Steindór Gestur og Sigurður Einar.