Góðgerðarvika barna og unglinga í Breiðholti

Skóli og frístund Mannlíf

""

Þessa dagana stendur ungmennaráð Breiðholts fyrir góðgerðarviku í hverfinu. Ráðið hefur fengið alla skóla í Breiðholti til liðs við verkefnið, svo og félagsmiðstöðvar, fyrirtæki og listamenn. Markmiðið er að láta gott af sér leiða, bæta ímynd ungs fólks í Breiðholti, sýna samstöðu og í leiðinni styrkja Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra.

Í vikunni sjá nemendafélögin um dagsskrá í skólum sínum eða gera góðverk. Sem dæmi gefur einn skólinn allan ágóða af sjoppunni sinni til Ljóssins meðan annar selur snúða til styrktar málefninu. Föstudaginn 8. febrúar verður síðan haldin árleg hæfileikarkeppni Breiðholts (Breiðholt Got Talent) þar sem unglingar láta ljós sitt skína.



En aðaldagur góðgerðarvikunnar er laugardagurinn 9. febrúar en þá verða smiðjur fyrir unglinga í Breiðholtinu. Smiðjurnar eru fjölbreyttar en velja má á milli smiðja í dansi, íþróttum, sushi, matreiðslu, ævintýrum, listum, fjölmiðlun, tækni, heilsu og útieldun. Nánari upplýsingar um smiðjurnar og staðsetningu þeirra eru á heimasíðu frístundmiðstöðvarinnar Miðbergs.

Á laugardagskvöld verður góðgerðarball í Hólabrekkuskóla þar sem Jón Jónsson, Frikki Dór og MC Gauti gefa vinnu sínu.

Allur ágóði af ballinu rennur óskiptur til Ljóssins.