Gleðilegan þjóðhátíðardag

Mannlíf

""

Hátíðardagskrá þjóðhátíðardagsins hófst klukkan 11:10 á Austurvelli. Lagður var blómsveigur að styttu Jóns Sigurðssonar, forsætisráðherra flutti hátíðarræðu og fjallkonan flutti ávarp. Að því loknu var farið í skrúðgöngu í kirkjugarðinn við Suðurgötu þar sem Björk Vilhelmsdóttir, varaforseti borgarstjórnar, lagði blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar.

Klukkan 13 fara svo skrúðgöngur af stað frá Hagatorgi niður í Hljómskálagarð og frá Hlemmi niður Laugaveg. Formleg skemmtidagskrá hefst svo klukkan 13 í Hljómskálagarði þar sem boðið verður upp á Skátaland þar sem hægt verður að fara í leiktæki. Tóti trúður kemur í heimsókn og fimleikasýning frá Ármanni auk fleiri skemmtiatriða. Á Arnarhóli hefst svo fjölskylduskemmtun klukkan 13:30.

Nánari upplýsingar um dagskrá má sjá á www.17juni.is