Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar verður haldinn hátíðlegur þann 11. maí næstkomandi og er markmiðið með hátíðahöldunum að fagna fjölbreyttri menningu borgarsamfélagsins. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og má með sanni segja að hún hafi öðlast sess í hugum borgarbúa enda setur hún skemmtilegan blæ á borgarlífið.
Fjölbreytt skemmtidagskrá verður í boði þann dag sem hefst með setningarathöfn kl. 13.00 við Hallgrímskirkju. Að því loknu fer Fjölmenningarskrúðganga af stað áleiðis í Ráðhús Reykjavíkur. Fjöldi fólks hefur ár hvert tekið þátt í göngunni og ræður litagleðin ríkjum og þátttakendur klæðast fallegum þjóðbúningum hinna ýmsu landa. Þegar í Ráðhúsið kemur hefst fjölþjóðlegur markaður í Tjarnarsal þar sem gestir og gangandi geta kynnt sér menningu ýmissa þjóðlanda og á boðstólum verða þjóðlegir réttir, listmunir og annar varningur.
Í Tjarnarbíói verður boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði, Lalli töframaður, Festejo dans frá Perú, litháískan kórsöng, Capoeira afró brasilísk bardagalist og Mamandi trommuhópur frá Gíneu. Að lokinni skemmtidagskrá verður ljóðaupplestur á ýmsum tungumálum og að því loknu stuttmyndasýning nemenda í Kvikmyndaskóla Íslands.
Um kvöldið klukkan 20.00 verða svo tónleikar í Hafnarhúsinu þar sem fram kemur hljómsveitin The Bangoura Band ásamt listamönnum frá Ghana.
Það ættu allir að geta fundið sér atriði við hæfi !
Gleðilegan Fjölmenningardag!