Gjafapappír fer í bláu tunnuna

Umhverfi

""

Allan jólapappír sama hvernig hann er á litinn má nú setja í bláu tunnuna en ganga þarf úr skugga um að sannarlega sé um pappír að ræða. Best er að sjálfsögðu að geyma hann og nota aftur að ári eða endurvinna hann á einhvern hátt.

Hátíðirnar sem í hönd fara eru annasamur tími fyrir Sorphirðu Reykjavíkur. Flestir ef ekki allir borgarbúar flokka pappír sérstaklega og bláu tunnurnar verða sennilega fljótar að fyllast yfir hátíðirnar. Ef pappír er brotinn saman og pappakassar teknir í sundur nýtist plássið í tunnunum betur. Einnig geta borgarbúar farið með pappír í grenndargáma og á endurvinnslustöðvar Sorpu.

Sorphirðan mun standa vaktina eins og kostur er yfir jólin en þá skiptir miklu að aðgengi að tunnum sé gott svo fólk er hvatt til að moka vel frá tunnum og sorpgeymslum.



Best er að endurnýta gjafapappír eins oft og kostur er. Á veraldarvefnum er hægt að finna ótal góðar hugmyndir um hvernig hægt er að endurvinna gjafapappír eða hvernig hægt er að búa til pakka úr því sem til er á flestum heimilum sbr. blöð, auglýsingapésar, snæri, litir og tölur. Einnig er gott að huga að því þegar keyptur er gjafapappír hvort hann sé endurvinnanlegur.