Gestabókin eftir Braga Ólafsson í Sólheimasafni
„Þorbjörn Gestur er 57 ára enskukennari. Í tæpa viku hefur hann dvalið í sumarbústað kennarafélagsins fyrir norðan, einn síns liðs, eftir að sambýliskona hans sneri aftur suður eftir fyrstu nóttina. Kvöldið áður en honum ber að yfirgefa bústaðinn man hann eftir að hann er ekki búinn að skrifa í gestabókina. Af dvölinni er hins vegar ekki margt frásagnarvert. Þess vegna dettur honum í hug að skrifa í bókina fyrir næstu gesti, sem eru samkennari Þorbjörns, eiginkona hans og tengdafaðir, og móðir. Á hádegi daginn eftir, þegar þau fjögur renna í hlað, er Þorbjörn Gestur ennþá á staðnum?–?og á eftir að þrífa og ganga frá.“
Gestabókin eftir Braga Ólafsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar verður flutt í Sólheimasafni þriðjudaginn 28. maí kl. 20.00. Leikarar eru Eggert Þorleifsson, Hjalti Rögnvaldsson, Guðlaug María Bjarnadóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Gunnar Hansson. Aðgangseyrir er kr. 2.000 og er miðasala á midi.is eða við innganginn. Leikritið verður svo flutt aftur laugardaginn 1. júní kl. 16.00.
Listahátíð, Útvarpsleikhúsið og Borgarbókasafnið mætast í dagskránni Rýmin & skáldin I-VI. Í Rýmunum & skáldunum gefst áhorfendum færi á að upplifa nýja hlið á bókasafninu og verða vitni að sköpunarferli sex nýrra íslenskra leikverka í sviðsettum leiklestri undir leikstjórn sex leikstjóra. Eftir þennan fyrsta flutning fyrir áhorfendur þróa leikskáldin og leikstjórarnir verkin áfram og síðar á árinu verður þau tekin upp á vegum Útvarpsleikhússins. Hvert leikrit verður flutt tvisvar sinnum, eftir lokun í bókasöfnunum.