Gervigras sett að hluta á grasvöll við Starhaga

Íþróttir og útivist

""

Nú á dögunum lauk framkvæmdum við að skipta út grasi fyrir gervigras á litla grasvellinum við Starhaga...

Nú á dögunum lauk framkvæmdum við að skipta út grasi fyrir gervigras á litla grasvellinum við Starhaga. Verkefni þetta er í raun tilraun á því að skipta út grasi inni í vítateigunum þar sem mesta álagið er og alltaf myndast hola með mold og grjóti. Þessi hugmynd og framkvæmd á vonandi eftir að skila sér í því að ungmenni geta notað þennan völl lengur á hverju ári, en ekki er neinn hiti undir grasinu. Ef þetta kemur til með að virka vel sjáum við því ekkert til fyrirstöðu að laga fleiri velli hér í Vesturbænum, en eins og allir Vesturbæingar vita er engin sparkvöllur í okkar næsta nágrenni. Þessi völlur kemur svo sem ekki neitt í staðinn fyrir sparkvöllinn, en þetta hefur vonandi þau áhrif á að ungmenni geta notað þessa velli meira en þeir eru notaðir, en eins og þeir sem til þekkja myndast djúpar holur á grasvöllum þar sem mörkin eru aldrei færð.

Við hvetjum börn og aðra sem áhuga hafa á því að sparka bolta að skoða þennan völl, því það þarf jú að nota hann vel til þess að sjá hvort þessi tilraun er þess virði að skoða fleiri velli í hverfinu með það í huga að skipta út grasi fyrir gervigras.