Þessa dagana er verið að sópa og háþrýstiþvo götur, gangstéttar og stíga í íbúðahverfum. Notaðir eru vélsópar og götuþvottabílar til verksins.
Íbúum er gert viðvart með bréfi og eru þeir beðnir um að liðka fyrir og færa bíla sína af þeim götum sem þrífa á hverju sinni. Í bréfinu sem dreift er í hús er vakin athygli á að mögulega þurfi að fara fleiri en eina umferð yfir hverja götu og íbúar því beðnir um að leggja ekki strax í götuna þó vélsópur hafi farið yfir svæðið.
Ábendingar frá borgarbúum um hreinsun eru að sjálfsögðu ávallt vel þegnar og er rétt að vekja athygli á ábendingavef sem er sérsniðinn fyrir ábendingar um þjónustu í borgarlandinu. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/borgarland. Inn á ábendingavefinn má að sjálfsögðu einnig setja hrós og hvatningu.