Sýningin Gay Greenland er nú er nú sýnd í Ráðshúsi Reykjavíkur og í Norræna húsinu. Um er að ræða farandsýningu sem samanstendur af 61 ljósmynd eftir ljósmyndarann Jørgen Chemnitz og er fyrsta myndræna heimildasöfnunin í heiminum um samkynhneigð á Grænlandi.
Andlit og orð eru komin á áður ósýnilegan og þaggaðan minnihluta í grænlenskri sögu. Ljósmyndarinn Jørgen Chemnitz og forstjóri NAPA á Grænlandi, Leise Johnsen hófu verkefnið Gay Greenland í kringum Gay Pride árið 2011 og 2012, en Gay Pride var haldið í fyrsta sinn árið 2010 í höfuðborg Grænlands, Nuuk.
Sýningin, sem er farandssýning var fyrst sýnd í janúar á þessu ári í Nuuk og er nú liður dagskrár Hinsegin daga í Reykjavík. Á næsta ári verður hún sýnd í Færeyjum og síðar í Kaupmannahöfn. Sýningin stendur frá 9. - 18.ágúst.