Víðast er trjágróður til prýði og ánægju, en þegar hann hefur vaxið út fyrir lóðarmörk getur hann skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur.
Reykjavíkurborg hvetur garðeigendur til að bregðast við og klippa tré sín svo þau hvorki hindri vegfarendur, hylji umferðarskilti né dragi úr götulýsingu. Einnig þurfa snjóruðningstæki að komast óhindrað um.
Bréf til 1.400 garðeigenda
Reykjavíkurborg sendi nú í vikunni bréf til 1.400 garðeigenda með hvatningu um að huga að gróðri sem vex út fyrir lóðarmörk. Margir þeirra hafa haft samband til að fá nánari skýringar og munu starfsmenn Reykjavíkurborgar skoða hvert tilvik. Flestir vilja fá að vita hvað eigi að klippa en það eru fjögur atriði sem þurfa að vera í lagi:
• Umferðarmerki verða að vera sýnileg.
• Gróður má ekki byrgja götulýsingu.
• Gangandi og hjólandi eigi greiða leið um gangstíga.
• Þar sem vélsópar og snjóruðningstæki fara um má lágmarkshæð gróðurs yfir stígum ekki vera lægri en 2,8 metrar.
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar eða koma ábendingum á framfæri geta haft samband í síma 4 11 11 11 eða sent tölvupóst á netfangið upplysingar@reykjavik.is
Garðeigendur bera ábyrgð á sínum gróðri
Garðeigendur eru í bréfinu minntir á ábyrgð sína samkvæmt byggingarreglugerð en hún setur þeim þá skyldu á herðar að halda gróðri innan lóðarmarka. Í reglugerðinni nr. 112/2012 gr. 7.2.2 segir: „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun".
Fyrr í haust var sent út almennt dreifibréf til garðeigenda og brugðust margir jákvætt við þeirri ábendingu og klipptu sinn gróður. Í bréfinu sem fór út nú í vikunni eru garðeigendur hvattir enn á ný til að klippa trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk. Verði ekki brugðist við þessari áskorun mun Reykjavíkurborg klippa á kostnað lóðarhafa.
Hugum að eigin gróðri
Reykjavíkurborg hefur í haust með skipulögðum hætti klippt eigin gróður á borgarlandi með öryggissjónarmið í huga. Víða byrgja tré sýn, brjóta upp sjónlínur og geta skapað hættu fyrir vegfarendur. Þeir sem vilja benda á staði þar sem trjágróður hindrar för eru hvattir til að setja færslu á ábendingavef fyrir borgarlandið >> http://reykjavik.is/thjonusta/abendingar-til-borgarinnar /