Fyrsti þátttökubekkur Klettaskóla verður í Árbæjarskóla

Skóli og frístund Mannréttindi

Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum í dag að fyrsti þátttökubekkurinn af fjórum frá Klettaskóla verði í Árbæjarskóla og taki til starfa 1. ágúst 2013.

Í stefnu skóla- og frístundaráðs um skóla án aðgreiningar og sérstakan stuðning við nemendur í grunnskóla er kveðið á um að stofnað skuli til fjögurra þátttökubekkja, undir stjórn Klettaskóla. Þátttökubekkurinn er sérhæft úrræði fyrir þroskahamlaða nemendur, undir stjórn starfsfólks Klettaskóla, en með aðsetur í almennum grunnskóla. Nemendur í þátttökubekk njóta faglegrar þjónustu og þekkingar sérskólans og jafnframt náms og skólastarfs í almennu námsumhverfi. Á sama hátt hefur almenni skólinn aðgang að sérþekkingu og faglegri þjónustu sérskólans. Gagnkvæmt samstarf og ávinningur er þannig hafður að leiðarljósi og starfar þátttökubekkurinn sem brú milli almenna skólans og sérskólans.

Frá samþykkt stefnunnar á liðnu ári, hefur starfshópur unnið að undirbúningi fyrsta þátttökubekkjarins og var niðurstaða hópsins að heppilegasti kosturinn fyrir fyrsta bekkinn væri í Árbæjarskóla sem er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 10. bekk. Gert er ráð fyrir að 5 - 6 þroskahamlaðir nemendur á miðstigi hefji þar nám á næsta skólaári.

Skólaráð Árbæjarskóla hefur í umsögn sinni fagnað þessu tækifæri til samstarfs við Klettaskóla og telur mikinn ávinning í því að tengja betur saman skólastarf sérskóla og almennra grunnskólar með hagsmuni allra nemenda að leiðarljósi.

Áætlaður kostnaður við rekstur fyrsta þátttökubekkjarins í Árbæjarskóla er um 20 milljónir króna á ársgrundvelli.

Stefna um skóla án aðgreiningar og sérstakan stuðning við nemendur í grunnskólum borgarinnar.