Fyrirlestur gegn kynferðisofbeldi
Foreldrafélög grunnskóla í Grafarvogi og Kjalarnesi efna til sameiginlegs fyrirlestrar í hátíðarsal Rimaskóla mánudagskvöldið 18. mars kl 19.30 með Kolbrúnu Baldursdóttur skólasálfræðingi sem ber yfirskriftina: „EKKI MEIR! Hvernig eflum við innra varnarkerfi barna gegn kynferðisofbeldi?“
Efnisatriði:
Birtingamyndir
Hvaða börn eru í áhættuhópi?
Hvar getur misnotkun átt sér stað?
Þegar gerandi er nákominn
Forvarnir, fræðsla: fyrirbyggjandi aðgerðir
Samvinna skóla/grasrótasamtaka og heimila
Viðbrögð fullorðinna þegar barn segir frá
Vísbendingar um misnotkun
Í samfélaginu leynast víða hættur, sumar hverjar fyrirsjáanlegar sem auðvelt er að fræða börnin um hvernig beri að varast en aðrar leyndari og þar af leiðandi hættulegri. Einstaklingar sem glíma við barnagirnd fyrirfinnast í okkar samfélagi sem öðrum en hversu margir glíma við þann sjúkleika er ekki vitað. Fræðsla sem þessi er þó vandmeðfarin ef hún á ekki að vekja óþarfa áhyggjur hjá barninu. Finnum bestu leiðirnar til að vernda börnin gagnvart þessari vá sem annarri.
Nýtum þetta einstaka tækifæri í heimabyggð og fræðumst um hvernig við getum verndað börnin okkar fyrir kynferðisofbeldi.