Fuglaskoðunarganga í Viðey í kvöld

Umhverfi

""

Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur og ljósmyndari sýnir og fræðir göngugesti um fjölskrúðugt fuglalíf Viðeyjar á morgun þriðjudaginn 11. júní. Gangan með Jóhanni Óla hefst kl. 19.30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir. Á sumrin siglir ferjan aukaferðir á þriðjudagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18.15 og 19.15.Fuglaskoðunargöngurnar hafa í gegnum árin verið með vinsælustu þriðjudagsgöngum Viðeyjar enda er fuglalíf þar fádæma fjörugt en um 30 tegundir fugla verpa í eynni. Jóhann Óli Hilmarsson sem leiðir gönguna er manna fróðastur um fugla og hefur gefið út afar fallegar og fræðandi bækur um fugla Íslands. Kærkomið tækifæri til að njóta hressandi útiveru, fuglalífs og fallegrar náttúru í túnfæti borgarinnar. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu er opið þessi kvöld og upplagt að njóta kvöldverðar í eynni áður en leiðsögn byrjar og / eða tylla sér niður við Viðeyjarstofu eftir gönguna, njóta kvöldsólarinnar yfir sundunum og fá sér hressingu áður en haldið er heim á leið um kl. 22.00. Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1100,- fyrir fullorðna og kr. 550,- fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin. Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu