Eftir margra ára bið eru loksins yrðlinga aftur að finna í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Árið 2005 kom fyrsta villta íslenska refaparið í garðinn en þessi tegund er oft kölluð heimskautarefir enda hægt að rekja uppruna þeirra til norðurhjara veraldar. Þetta eru fyrstu yrðlingar þessarar tegundar sem er gotið í garðinum. Það var tófan Flandra sem gaut sínum fyrstu afkvæmum fyrir nokkrum vikum en þeir litu dagsins ljós í dag (föstudag) eftir að hafa dvalið inni í greni frá goti. Faðirinn er steggurinn Frosti en gera má ráð fyrir að hann taki fullan þátt í uppeldinu eins og oftast er hjá refum.
Dýrahirðar garðsins hafa fylgst náið með líðan yrðlinganna enda um fyrsta got Flöndru að ræða og hún hefur staðið sig með mikilli prýði og ekki annað að sjá en yrðlingarnir dafni vel. Meðgöngutími tófa er 52 dagar og við got eru yrðlingarnir að meðaltali 70 grömm. Þeir eru hærðir en blindir og opna augun 15 - 16 daga gamlir.
Á fyrstu þrem vikum ævinnar nærast þeir eingöngu á móðurmjólkinni en taka þá éta að kjöt sem báðir foreldrarnir færa þeim. Tófur virðast yfirleitt venja þá undan sér við 8 - 10 vikna aldur. Yrðlingar vaxa hlutfallslega hraðar en ungviði flestra annarra rándýra og ná 90% af endanlegri stærð á tæpum 4 mánuðum. Þeir virðast orðnir töluvert sjálfbjarga við fæðuöflun strax þriggja mánaða og alveg óháðir foreldrum fjögurra mánaða gamlir.
Fyrstu dagana og vikurnar voru yrðlingarnir og tófuparið mjög viðkvæmt fyrir umgangi og því hefur loðdýrahúsið verið lokað síðustu vikur en nú þegar þeir eru farnir á kreik hefur það verið opnað að nýju. Starfsfólk garðsins þakkar gestum fyrir tillitsemi við nýju fjölskylduna.