Frostaskjól komið í sumarskap

Íþróttir og útivist Skóli og frístund

""

Í dag var starfsdagur í Frostaskjóli. Nú er vetrarstarfinu lokið og Frostaskjól skiptir yfir í sumargírinn. Rúmlega 50 starfsmenn lögðu drög að sumrinu og var meðal annars var farið  yfir öryggisverkferla, sumarlögin rifjuð upp ásamt leikjum og hópefli.

Það verður margt skemmtilegt í boði í Frostaskjóli sumar. Frístundaheimilin verða öll með heilsdagsdagskrá þar sem unnið verður eftir mismunandi þemum hverja vikuna. Sem dæmi má nefna vísindaviku, vatnaviku, dýraviku og íþróttviku.

Félagsmiðstöðin Frosti verður opin í sumar og einnig  félagsmiðstöð á hjólum sem fer um hverfið og verður með skemmtilegar uppákomur.

Smiðjur fyrir 10  - 12 ára eru einnig fjölmargar.  Nýtt í sumar er svo námskeiðið ,,smíðar, útivist og sköpun“ , vikulöng námskeið þar sem boðið verður uppá fjölbreytt skapandi starf.

Félagsmiðstöðvarhópur unglinga í samstarfið við Vinnuskólann verður einnig á sínum stað og starf fyrir 16 ára og eldri.