Frostaskjól í 3. sæti yfir minni stofnanir ársins hjá STRV

Niðurstöður úr könnun Starfsmannafélags Reykjavíkur um stofnun ársins voru kynntar nýlega. Hún leiddi í ljós að Faxaflóahafnir voru besta stofnun ársins í flokki stórra stofnana en leikskólinn Garðasel í flokki minni stofnana, annað árið í röð. Frístundamiðstöðin Frostaskjól varð hins vegar í þriðja sæti í flokki minni stofnana og er þar efst allra stofnana Reykjavíkur.

Í Frostaskjóli starfa um 100 manns. Frá því að Frostaskjól tók til starfa 1986 hefur þjónusta við hverfisbúa aukist mikið og Frostaskjól breyst úr félagsmiðstöð í frístundamiðstöð. Þar er börnum boðið upp á fjölbreytt félags- og tómstundastarf þar sem áhersla er lögð á forvarnir og að beina þeim inn á braut heilbrigðs og jákvæðs lífernis.

Starfsfólk Frostaskjóls er himinlifandi með niðurstöður könnunar og að fá viðurkenningu fyrir 3. sætið.