Friðarsúlan tendruð á ný í Viðey á stórafmælisári Yoko Ono

Umhverfi Mannlíf

""

Það er einstök friðarstund þegar Yoko Ono tendrar Friðarsúluna í Viðey og andi ljóss og friðar svífur yfir vötnum.  Á fæðingardegi John Lennons þann 9. október næstkomandi verða ljósin kveikt með fallegri athöfn í eyjunni kl. 20:00. Yoko Ono býður gestum sem vilja vera viðstaddir tendrun súlunnar í fría kvöldsiglingu yfir Sundið. 

Það er einstök friðarstund þegar Yoko Ono tendrar Friðarsúluna í Viðey og andi ljóss og friðar svífur yfir vötnum.  Á fæðingardegi John Lennons þann 9. október næstkomandi verða ljósin kveikt með fallegri athöfn í eyjunni kl. 20:00.
 
Yoko Ono býður gestum sem vilja vera viðstaddir tendrun súlunnar í fría kvöldsiglingu yfir Sundið. Dagskráin við Friðarsúluna hefst í Viðeyjarnausti klukkan 19:00 með tónlistarflutningi tónlistarmannsins Péturs Ben en hann  spilar fyrir gesti fyrir og eftir tendrun súlunnar.  Naustið verður lýst upp með kertum og þar verður hægt að setjast niður og kaupa sér heitt kakó og dálítið meðlæti. Þar mun standa Óskatré Yoko Ono og geta gestir skrifað á það óskir sínar og hlýtt á fallega tónlist. Leikkonan Elva Ósk Ólafsdóttir verður kynnir kvöldsins og Kammerkór Suðurlands syngur við athöfnina undir stjórn stofnanda hans, Hilmars Arnar Agnarssonar. Flutt verða stutt ávörp.
 
Siglingar til Viðeyjar verða frá Skarfabakka og hefjast klukkan 18:00. Fríar strætóferðir verða frá Hlemmi að Skarfabakka og til baka. Fyrsti vagn fer klukkan 18:40 frá Hlemmi og síðan á tuttugu mínútna fresti fram til kl. 19.40. Að athöfn lokinni siglir fyrsta ferja frá Viðey kl. 21:00 og  munu strætisvagnarnir taka á móti fólki og flytja það að Hlemmi allt fram til 22:30.
 
Fimmtudaginn 10. október hefjast svo hefðbundnar Friðarsúlusiglingar sem farnar verða kl.20:00 á hverju kvöldi til 8. desember. Gjald í þær ferðir er kr. 5000.- fyrir fullorðna og kr. 2500.-  fyrir börn 7-15 ára. Allar nánari upplýsingar um þessar ferðir er að finna á www.elding.is
 
Höfuðborgarstofa hvetur sem flesta að nýta þetta einstaka tækifæri að sigla út í Viðey og berja Friðarsúluna augum í návígi og taka þátt í einstakri samverustund friðar.