Frestur til að skila hugmyndum rennur út í dag

Umhverfi

""

Frestur til að skila inn hugmyndum að verkefnum í hverfum Reykjavíkurborgar rennur út í dag, föstudaginn 15. febrúar.

Vel yfir 300 hugmyndir að alls konar verkefnum hafa þegar borist inn á undirvefinn Betri hverfi á www.betrireykjavik.is. Óskað er eftir verkefnum að smærri nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum sem bæta aðstöðu fyrir íbúa í hverfum borgarinnar.

Reykvíkingar eru hvattir til þess að kynna sér vel þær hugmyndir sem aðrir hafa sett inn á vefinn og styðja þær eða hafna þeim. Það er mikilvægt að sem allra flestir fari vel yfir hugmyndirnar á samráðsvefnum svo forval hugmynda verði heppnist vel.

Íbúanefndir og fulltrúar hverfisráða munu fara yfir hugmyndirnar sem hafa borist inn á vefinn í samráði við fagteymi borgarinnar sem kostnaðarmetur þær. Að loknu forvali verður efstu hugmyndum stillt upp til rafrænna íbúakosninga í Reykjavík sem fara fram með sama sniði og í fyrra dagana 14. - 19. mars.

Hægt er að setja inn hugmyndir hér.