Framkvæmdir hafnar við endurnýjun Hverfisgötu

Framkvæmdir

""

Hverfisgata milli Klapparstígs og Vitastígs verður endurnýjuð og fegruð. Allt yfirborð götu og gangstétta verður endurnýjað, ásamt þeim lögnum sem komnar eru á tíma. Malbikaðar hjólareinar verða beggja vegna götu. Gatnamót við þvergötur verða steinlögð og upphækkuð. Snjóbræðsla verður sett í gönguleiðir, hjólareinar og upphækkuð gatnamót.

Framkvæmdin er á vegum Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur, Orkuveitu Reykjavíkur, Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu ehf.

Gatan breytir um ásýnd

• Nýtt yfirborð götu og gangstétta.

• Snjóbræðsla verður sett í gönguleiðir, hjólareinar og upphækkuð gatnamót.

• Lagnir sem komnar eru á tíma verða endurnýjaðar í samstarfi við veitufyrirtæki.

• Gatnamót verða steinlögð og upphækkuð.

• Götutré verða gróðursett.

• Hjólareinar verða beggja vegna götu.

• Öryggi hjólandi, gangandi og akandi vegfarenda verður bætt.

• Strætisvagnar sem fara um Hverfisgötu munu stöðva í götunni og hjólandi vegfarendur fara aftur fyrir strætóskýli.

• Hámarkshraði umferðar verður áfram 30 km/klst.

• Á Hverfisgötu, á milli Lækjargötu og Snorrabrautar, verða umferðarljós fjarlægð og beygjuakreinar lagðar af.

• Á Hverfisgötu verða hjólastígar malbikaðir, einnig yfir gatnamót.

Verkinu áfangaskipt

Verkinu í sumar er áfangaskipt til að það valdi sem minnstum truflunum á miðborgarlífinu. Fyrsti áfangi verksins frá Vitastíg niður að Vatnsstíg verður unnin í júlí fram í nóvember. Frá Vatnsstíg að Klapparstíg verður unnið frá 26. ágúst fram í nóvemberlok. Umferð á greiða leið af Laugavegi niður Vatnsstíg á meðan framkvæmdir við fyrri áfanga standa yfir en um gatnamót Frakkastígs þegar honum lýkur og vinna við seinni áfangann hefst.