Framkvæmdir á götum borgarinnar

Framkvæmdir

""

Veður hefur hamlað framkvæmdum á götum borgarinnar en hægt er að fræsa götur þó hann rigni. Á morgun, föstudaginn 28. júní, verða í gangi viðhaldsframkvæmdir á götum í Reykjavík.

Unnið verður við fræsun á Sigtúni frá Gullteigi að Reykjavegi. Áætlað er að framkvæmdir hefjist kl. 9. Lokað verður fyrir alla umferð um götukaflann á meðan á framkvæmdum stendur.

Á laugardaginn, 29. júní, verður fræsað á syðri akreinum Suðurlandsbrautar frá Hallarmúla að Vegmúla. Áætlað er að framkvæmdir hefjist kl 9. Þrengja þarf götukaflann og því má búast við einhverjum töfum í umferð frá vestri til austurs á meðan framkvæmdum stendur.