Frakkastígsreitur - hagsmunaaðilafundur

Umhverfi Framkvæmdir

""

Frakkastígsreitur, breyting á deiliskipulagi - hagsmunaaðilafundur, þriðjudaginn 18. júní kl. 16 - 17 í Höfðatorgi, Borgartúni 12 - 14.

Fundurinn verður haldinn í fundarsalnum Vindheimum á 7.hæð, fundargestir fá aðgangspassa á þjónustuborði. Húsið lokar kl. 16.15. Kynnt verður auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi á Frakkastígsreit sem afmarkast af Laugavegi, Frakkastíg og Hverfisgötu. Veittur verður frestur til athugasemda til 24. júlí. Athugasemdir skal senda á netfangið skipulag@reykjavik.is

Fundurinn er öllum opinn og við vonumst til að sjá sem flesta.