Fræðsla í Vesturgarði

Velferð

""

Í dag var einn liðurinn í fræðslunni sem við höfum ákveðið að kalla „Í dagsins önn, birtingarmyndir ofbeldis í daglegu starfi og umhverfi“.

Í dag var fjallað um ofbeldi karla gegn konum, ásamt stuttri kynningu á starfi Kvennaathvarfsins en það var Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri athvarfsins sem fór yfir ýmis mál sem unnið er að og fór yfir hvers konar mál koma inn á borð þeirra. Fræðsla sem þessi gefur fólki betri innsýn inn í starf Kvennaathvarfsins og hvers konar mál koma inn á þeirra borð.

Næsta fræðsla sem fellur undir þennan titil „Í dagsins önn“ verður 23. janúar n.k. kl. 13.00 í Vesturgarði, en þá verður fjallað um ofbeldi gagnvart öldruðum.