Föstudagsleiðsögn og ljósmyndasýning í Grasagarðinum

Íþróttir og útivist Menning og listir

""

Á morgun, föstudaginn 7. júní kl. 13, verður fyrsta föstudagsleiðsögn sumarsins farin um Grasagarðinn en í júní, júlí og ágúst verða almennar leiðsagnir um garðinn alla föstudaga.

Á göngu um garðinn verður fjallað um starfsemi garðsins, sögu og þróun. Safndeildir og plöntur skoðaðar sem og áhugaverðar menningarminjar sem garðurinn geymir. Lagt af stað frá aðalinngangi kl. 13 alla föstudaga.

Að kvöldi sama dags, föstudaginn 7. júní kl. 20, opnar pólski ljósmyndarinn Marta Niebieszczanska ljósmyndasýninguna .is í Café Flóru. Marta sýnir ljósmyndir sem teknar eru með sígildum aðferðum á filmu og camera obscura. Sýningin stendur til 7. júlí og er opin daglega á opnunartíma Café Flóru 10-22. Marta skrifar einnig fyrir pólsk-íslensku vefsíðuna Iceland News Polska.