Vakin er athygli á því að nú er opið fyrir umsóknir um styrki í Forvarnarsjóð Reykjavíkur en hlutverk sjóðsins er að stuðla að forvörnum og styrkja félagsauð í hverfum Reykjavíkur. Styrkir úr sjóðnum verða veittir til verkefna sem styðja forvarnir í þágu barna og unglinga, eflingu á félagsauð i hverfum borgarinnar og verkefnum sem stuðla að bættri lýðheilsu. Verkefnin gefa einstaklingum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum tækifæri til að vinna að forvörnum í borginni. Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einstökum hverfum eða almennt í borginni. Hverfisráð veita styrki til verkefna í hverfum, en velferðarráð til almennra verkefna í borginni að fenginni umsögn samráðshóps um forvarnir. Stofnanir Reykjavíkurborgar eða starfsmenn þeirra geta ekki sótt um styrki í sjóðinn en geta verið samstarfsaðilar í verkefnum sem aðrir sækja um styrk til.
Umsóknarfrestur er til og með 23. mars 2013. Umsóknareyðublað og upplýsingar um úthlutunarreglur og tengiliði er að finna á vef Reykjavíkurborgar; www.reykjavik.is/forvarnarsjodur.