Formaður borgarráðs í jólaskógi Heiðmerkur

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, opnaði jólaskóg Skógræktarfélags Reykjavíkur í morgun með því að fella fyrsta jólatréð. 

Það er sterk hefð í mörgum fjölskyldum að koma í Heiðmörk á aðventunni og höggva sitt eigið jólatré.  Jólaskógurinn er í Hjalladal í Heiðmörk og er leiðin vel merkt hvort sem ekið er frá Suðurlandsvegi um Rauðhóla eða frá Vífilsstaðavatni inn í Heiðmörkina. 

Í ár verður opið í Hjalladal helgarnar 7.-8., 14.-15. og 21.-22. desember, kl. 11-16. Alla daga verður líf og fjör, jólasveinarnir verða á staðnum og varðeldur mun loga glatt. Boðið er upp á heitt kakó, piparkökur og jólasöng.