Foldaskólakrakkar stóðu sig vel í stærðfræðikeppni
Foldaskóli stóð sig vel í nýafstaðinni stærðfræðikeppni sem Borgarholtsskóli stóð fyrir meðal grunnskólanema í Grafarvogi, Grafarholti, Mosfellsbæ, Norðlingaholti, Kjalarnesi og Árbæ.
Keppt var í aldurshópum 8., 9. og 10. bekkja og voru verkefni í formi þrauta fremur en hefðbundinna stærðfræðidæma. Tveir drengir úr 10. bekk í Foldaskóla vermdu efstu sætin í sínum aldurshópi. Í fyrsta sæti var Davíð Phuong Xuan Nguyen og fast á hæla hans fylgdi Þórður Ágústsson. Samtals fengu sex af ellefu nemendum sem kepptu fyrir hönd skólans viðurkenningar fyrir tíu efstu sætin í hverjum árgangi.