Flugeldarusl hentar ekki til pappírsendurvinnslu

Umhverfi

""

Víða má sjá leifar af áramótaskoteldunum og eru borgarbúar hvattir til að safna þeim saman og skila á endurvinnslustöðvar Sorpu.  Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa verið á ferðinni og tóku í morgun flugeldarusl meðal annars við Hallgrímskirkju og á Landakotstúni en þar er jafnan mikið skotið upp um áramót.

Púður er aðeins 10% af heildarþyngd skotelda en restin er aðallega pappír og leir og því hentar pappírinn alls ekki til endurvinnslu. Gæta þarf að því að ekki lifi glóð í skoteldum sem settir eru í heimilissorptunnur svo ekki skapist hætta þegar þeir fara í pressu sorpbílanna. Flugeldar sem eru ósprungnir eiga að fara í spilliefnagáma á endurvinnslustöðvum Sorpu og þangað er einnig hægt að skila flugeldarusli ef sorptunnur eru yfirfullar.