Það má segja að Reykvíkingar hafa tekið átakinu, Pappír er ekki rusl, fagnandi enda fjöldi borgarbúa löngu farnir að flokka og skila til endurvinnslu. Margir hafa pantað sér bláa pappírstunnu og eru þær orðnar um 9000 í Reykjavík í dag í stað 4000 í lok síðasta árs. Síðasta hálfa mánuðinn hafa borist hvorki meira né minna en 1000 pantanir á bláum tunnum undir pappírsefni.
Eins og flestir vita er pappír ekki rusl og því verður hætt að hirða gráar og grænar tunnur borgarinnar ef í þeim er pappír eða pappi frá og með föstudeginum 11. október. Á tunnum sem ekki verða tæmdar verður límmiði um hvað skuli til bragð að taka.
Í langflestum tilvikum er pappírsefnið vel flokkað og greinilegt að íbúar Reykjavíkur eru að vanda sig við flokkunina. Margir spyrja hvort fernur og umbúðir úr pappír megi fara í bláu tunnuna en hún er einmitt m.a. ætluð undir slíkt. Mikilvægt er að hreinsa allar matarleifar af umbúðunum og setja efnið laust í tunnuna en ekki í plastpoka.
Árangur borgarbúa má mæla í tonnum en það sem af er árinu hafa um 40 tonnum meira af pappírsefnum skilað sér til endurvinnslu að jafnaði í hverjum mánuði en í fyrra eða samtals um 3.680 tonn. Á sama tíma hefur að jafnaði 118 tonnum minna af blönduðum úrgangi farið í gráu og grænu tunnur borgarinnar og verið urðað í Álfsnesi. Það er óhætt að fullyrða að borgarbúar eru að taka græn skref í úrgangsmálum.
Til hvaða bragðs er hægt að taka ef pappír finnst í gráu eða grænu tunnunni
Gráa tunnan er ekki losuð og settur er límmiði á hana með áletruninni ,,Ekki losað“ þegar vart verður við pappír eða pappa í tunnunni. Íbúar þurfa þá að fjarlægja allan pappír úr tunnunni áður en hún er losuð næst. Ef þörf er á losun fyrir næstu umferð þá þarf að bregðast við með einu af neðangreindu:
•Hafa samband við Reykjavíkurborg og óska eftir aukalosun sem kostar 3.480 kr. fyrir eina tunnu og 480 krónur fyrir hverja tunnu til viðbótar.
•Nálgast merkta poka sem hægt er að losa úrganginn úr tunnunni í. Pokarnir eru síðan skildir eftir hjá tunnunum og verða fjarlægðir við næstu losun. Þeir fást á næstu N1 stöð í Reykjavík eða í Þjónustuver Reykjavíkurborgar Borgartúni 12-14. Pokarnir kosta 650 krónur stk. og eru seldir 5 saman og kosta því samtals 3.250 kr.
•Fara með úrganginn úr tunnunni á næstu endurvinnslustöð sem eru 7 á höfuðborgarsvæðinu.
Hægt er að losa sig við pappír og pappa á eftirfarandi stöðum:
•Bláa pappírstunnu borgarinnar
Hana þarf að panta og geta íbúar að jafnaði byrjað að flokka í hana innan tveggja daga frá því að hún er pöntuð nema að eitthvað óvænt komi upp á.
•Endurvinnslustöð
Slíkar stöðvar eru 7 á höfuðborgarsvæðinu en þar er jafnframt hægt að skila mörgum öðrum flokkum endurvinnsluefna.
•Grenndarstöð
Slíkar stöðvar eru 56 innan Reykjavíkur og þar er auk pappírs og pappa hægt að skila plasti og í einhverjum tilfellum skilagjaldskildum umbúðum og fötum.
•Einkaaðilar bjóða líka flokkunartunnu heim við hús.