Tæplega 30 nýir frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur í félagsmiðstöðvum og frístundaklúbbum sóttu grunnfræðslu sem fram fór í Kringlumýri fimmtudaginn 26. september.
Fræðsluna önnuðust deildastjórar frístundamiðstöðvanna en sterk hefð er fyrir öflugri nýliðafræðslu á haustin fyrir þessa hópa.
Samkvæmt venju byrjaði fræðsludagskráin á öflugum hópeflisleikjum sem var veganesti þátttakenda inn í daginn en leikirnir nýtast jafnframt hópnum í starfi sínu á vettvangi. Fræðsludagskráin var sett upp í formi örsmiðja um ákveðin umfjöllunarefni. Meðal annars var fjallað um hlutverk, starfsþætti og hugmyndafræði félagsmiðstöðva, ábyrgð og hæfni frístundaráðgjafa og unglingsárin sem æviskeið. Markmiðið var að virkja þátttakendur í fræðsludagskránni og því einkenndist vinnulag af umræðum og stuttum verkefnum.
Mikil ánægja var með grunnfræðsluna. Það var mat þátttakenda að vel hafi tekist til og smiðjurnar verið gott veganesti fyrir nýliða í starfi inn í komandi vetur.